Störf í boði

Laus störf í íþróttahúsum ÍR

Félagið leitar eftir konu og karli til starfa í íþróttahúsum ÍR í Breiðholti. Störfin fela í sér umsjón, ræstingu og minniháttar viðhald. Konu vantar í dagvinnu milli 8 og 16 en karla vantar í vinnu sem er 8-16 aðra vikuna og 16-24 hina vikuna. Áhugasamir sendi tölvupóst á netfangið haukur@ir.is




Sumarstörf 2011


http://www.vinnuskoli.is
Í gegnum Vinnuskóla Reykjavíkur getur ÍR ráðið til sín þónokkuð mörg ungmenni, en fjöldi verður ekki ljós fyrr en í maí. Opnað er fyrir umsóknir í apríl. Krakkar fæddir 1995 ganga fyrir síðan er það 9.bekkur. Vinnan snýr að sumarnámskeiðum ÍR og umhirðu á svæðinu.
Það sem þið þurfið að gera er að sækja um á vef Vinnuskóla Reykjavíkur þegar opnar fyrir umsóknir þar og tilgreina að þið viljið vinna hjá ÍR. Þrátt fyrir að umsóknin fari þar inn, þurfið þið að hafa samband við Sigrúnu Grétu Íþróttafulltrúa ÍR í síma 587-7080 eða sigrun@ir.is


http://www.hitthusid.is

Í gegnum Hitt húsið eða Vinnumiðlun ungs fólks getur ÍR ráðið til sín nokkra aðila til að sinna sumarnámskeiðum og umhirðu á svæðinu og ÍR heimili. Nú þegar er opið fyrir umsóknir og geta allir sem fæddir eru 1994 og eldri sótt þar um. Tilgreina þarf í umsóknarferlinu að sóst sé eftir því að vinna hjá ÍR. Einnig þarf að hafa samband við Sigrúnu Grétu Íþróttafulltrúa ÍR í síma 587-7080 eða sigrun@ir.is

Ath.
að viðkomandi þarf að hafa verið með lögheimili í Reykjavík undanfarna 6 mánuði.
Skattkort þurfið þið að fara með í Borgartún 12-14 (þjónustuver á 1.hæð). Þetta á við þau sem eru fædd 1995 og síðar, yngri fá ekki skattkort sent til sín.