Markaðsfulltrúi/íþróttafulltrúi ÍR
Markaðsfulltrúi vinnur samkvæmt starfslýsingu og er undir stjórn framkvæmdastjóra. Markaðsfulltrúi er í nánu samstarfi við deildir félagsins og annast verkefni sem snúa að fjáröflun deilda og í að aðstoða við markaðssetningu á félaginu í heild sinni. Þess má geta að þetta starf er í mótun og getur starfslýsing því breyst. Verkefni markaðsfulltrúa eru m.a.:
-
Sérstök aðstoð við deildir til að afla tekna með mótahaldi o.þ.h.
-
Kynning/markaðssetning á íþróttum félagsins í samráði við deildir, t.d. með útgáfu á upplýsingariti ÍR.
-
Heimsóknir í skóla og félagsstofnanir í samráði við deildir.
-
Kynning í hverfismiðlum á hátíðum, mótum, o.þ.h.
-
Umsjón hátíða, svo sem; sumardagurinn fyrsti, öskudagurinn, sérstakur árlegur íþróttadagur íþróttafélagsins og aðrar íþróttahátíðir.
-
Umsjón með heimasíðu félagsins og setja inn efni og fréttir á aðalsíðu félagsins. Sérstök aðstoð við fulltrúa deilda með að halda úti heimsíðunni.
-
Annað sem viðkemur öflun tekna og markaðssetningu á félaginu á einn eða annan hátt í samráði við framkvæmdastjóra félagsins.
-
Auglýsa leiki og aðra viðburði ÍR.
-
Umsjón og aðstoð við ýmis styrkjamál deilda og félagsins í heild.
Til baka