Um sumarnámskeið ÍR
Fagaðilar sjá um námskeiðin, íþróttafræðinemar og þjálfarar með reynslu. Einnig koma að námskeiðunum valdir nemendur í 10.bekk sem bera hag barnanna í brjósti. Umsjónaraðilar námskeiða fara á námskeið hjá ÍTR og eru starfsmenn íþróttahúss með skyndihjálparréttindi.
Skráning stendur yfir mánuði áður en 1. námskeið hefst og á meðan á námskeiðum stendur.
Hægt er að greiða á ýmsa vegu, en greiða þarf strax í upphafi námskeiðs. Ef greitt er með kreditkorti er nóg að hringja í síma 587 7080 eða 587 7090.
Frístundakort Reykjavíkurborgar gilda ekki á sumarnámskeið því tímabil námskeiða þarf að spanna 10 vikur.