n1_logo_grunni

hertz-hvitur_grunnur









Íþróttaskóli 3-6 ára

Íþróttaskóli ÍR fyrir 3-6 ára börn (vetur 2012-2013)

Íþróttaskólinn er í boði einu sinni í viku frá september til maí. Skólinn hefur aðsetur í ÍR-heimilinu við Skógarsel 12. Best er að börnin séu berfætt og í þægilegum bol og buxum, ekki er þörf á sérstökum íþróttafatnaði. 3-4 ára börn eru saman í hóp og 5-6 ára saman. Yngstu börnin eru þau sem eru fædd árið 2009 og þau elstu eru börn úr 1. árgangi skólanna.
Í Íþróttaskólanum eru leystar ýmsar þrautir þar sem börnin reyna á jafnvægi, fín- og grófhreyfingar, samhæfingu, líkamlegan þroska sem og félagslegan. Þau læra að bera virðingu fyrir öðrum og vinna saman. Skynfærin þarf einnig að örva og samhæfa og í leikfimi sem þessari reynir á þau öll.

Metta Magnúsdóttir íþróttafræðinemi í HR sér um kennsluna ásamt öðrum sér til aðstoðar.

3-4 ára (´08-´09) eru á þriðjudögum kl.16:30-17:15 eða laugardögum kl.09:30-10:15.
5-6 ára (´06-´07) eru á fimmtudögum kl.16:30-17:15. 

Íþróttaskólinn hefst 4.september.

 

Verð fyrir áramót: 16 vikur 1 sinni í viku kostar 8.500 kr. Tímabil 4.sept.-18.des.
Verð eftir áramót: 18 vikur 1 sinni í viku kosta 10.000 kr. Tímabil 8.jan.-18.maí.

 

Nánari upplýsingar:

Metta í síma 895-0864 eða á netfangið mettam@gmail.com

Sigrún Gréta Íþróttastjóri ÍR í síma 587 7080 eða á netfangið sigrun@ir.is.