Lesa frétt
17.7.2012

Sandra Dögg Bjarnadóttir í landslið U16

Sandra Dögg Bjarnadóttir leikmaður knattspyrnudeildar ÍR var valin til að taka þátt í Opna Norðurlandamótinu í U16 sem fór fram í Noregi. Það er mikill heiður fyrir hana og félagið að hún skuli hafa verið valin og vonandi verður það frekari hvatning fyrir hana og aðrar stelpur í félaginu til að sína metnað og dugnað við æfingar og leiki, því á þann hátt eiga þær alla möguleika á að vera valdar í landsliðið.

Stelpurnar okkar unnu góðan sigur á stöllum sínum frá Danmörku í leiknum um 7. sæti. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Ísland og komu bæði mörkin í fyrri hálfleiknum.

Nánari upplýsingar um mótið eru á

www.ksi.is  

og þar má finna heimasíðu mótsins.

 

Sandra2012_juli_u17 250