Lesa frétt
5.2.2012

MÍ 15-22 ára - ÍR Íslandsmeistari félagsliða 15-22 ára í frjálsíþróttum 9. árið í röð

MÍ 15-22 inni 2012 SigurliðiðMeistaramóti Íslands í flokki 15 til 22 ára er lokið í Laugardalshöll. Keppendur voru 230 frá 18 félögum og það er mesti fjöldi sem tekið hefur þátt í þessu móti frá upphafi.

ÍR-ingar unnu stigakeppni félaganna og eru því Íslandsmeistarar félagsliða 15-22 ára níunda árið í röð. Lið ÍR hlaut 497,8 stig en lið Breiðabliks sem varð í öðru sæti fékk 209,5 stig.

ÍR-ingar lönduðu sigri í eftirfarandi flokkum:
Stúlkur 15 ára en þær fengu 79 stigum en FH-ingar urðu í öðru sæti með 37,5 stig.
Stúlkur 16-17 ára unnu með 91,5stig. Í öðru sæti varð HSK/Selfoss með 42,5 stig.
Piltar 16-17 ára hlutu 98,5 stig en lið Breiðabilks varð í öðru sæti með 50,5 stig.
Stúlkur 18-19 ára sigruð með 57 stig. Í öðru sæti varð Ármann með 36 stig.
Piltar 20-22 ára sigruðu með 83 stig en HSK/Umf Selfoss hafnaði í öðru sæti með 33 stig.
Lið ÍR var skipað 67 unglingum. Að meðaltali var hver keppandi skráður í 3,5 greinar.

Þessi gæsilegi árangur liðsins er lýsandi dæmi um það öfluga uppbyggingarstarfs og þá miklu grósku sem einkennt hefur starf deildarinnar í mörg ár.

 

Þeir ÍR-ingar sem stigu á verðlaunapall voru:

Í flokki 15 ára stúlkna
Thelma Lind Kristjánsdóttir sigraði í þrístökki en hún stökk 11,09 m. Hún vann silfurverðlaun í 60 m grindahlaupi en hún hljóp á tímanum 9,94 sekúndum og bronsverðlaun í 200 m hlaupinu þegar hún hljóp á 27,28 sekúndum.
Melkorka Embla Hjartardóttir sigraði í 1500 m hlaupi á tímanum 5:23,29 mín.
Málfríður Anna Eiríksdóttir varð í öðru sæti í 1500 m hlaupi á 5:32,53 mín.
Boðhlaupssveit ÍR sigraði í 4*200 m boðhlaupinu á 1;51,94 mín.

Í flokki 16-17 ára stúlkna
Bogey Ragnheiður Leósdóttir varð önnur í stangarstökki þegar hún fór yfir 3,20 m
Aníta Hinriksdóttir vann silfur í 60 m grindahlaupi á tímanum 9,50 sekúndur
Kristín Liv Svabo Jónsdóttir fékk bronsið í 60 m grindahlaupinu en hún hljóp á 9,60þ
ÍR-stúlkur unnu þrefalt í 1500 m hlaupinu. Aníta Hinriksdóttir varð fyrst á 4:28,98 mín. í öðru sæti varð Ásthildur Margrét Jóhannsdóttir á tímanum 5:39,74 mín. og í þriðja sæti varð Laufey Svafa Rúnarsdóttir en hún hljóp á 5:40,07 mín.
Sveitir ÍR höfnuðu í 1. og 3. sæti í 4*200 m boðhlaupunum. A svetin hjóp á 1:49,55 mín og B sveitin á 2:02,16 mín.

Í flokki 18-19 ára stúlkna
Hilda Magrét Ragnarsdóttir sigraði í stangarstökki þegar hún fór yfir 3,10 m.
Edda Eir Guðlaugsdóttir vann til bronsverðlauna þegar hún fór yfir 2,50 m.
Dóróthea Jóhannesdóttir sigraði í þrístökki með stökk upp á 11,31m og varð í öðru sæti í 200 m hlaupinu þegar hún kom í mark á 25,84 sekúndum.
Heiður Þórisdóttir vann til bronsverðlauna í þrístökki en hún stökk 9,80 m.

Í flokki 20-22 ára stúlkna
Hulda Þorsteinsdóttir sigraði í stangarstökk á persónulegu meti en hún stökk yfir 4,00 m.
Sigurlaug Helgadóttir sigraði í þrístökk með 10,83 m langt stökk.
Sveit ÍR sigraði í 4*400 m boðhlaupi á tímanum 4:38,83 mín.

Í flokki 15 ára pilta
Boðhlaupssveit ÍR varð í þriðja sæti á tímanum 1:48,54 mín.

Í flokki 16-17 ára pilta
Sæmundur Ólafsson sigraði í 1500 m hlaupi á tímanum 4:20,50 mín.
Boðhlaupssveit ÍR hafnaði í öðru sæti í 4*200 m boðhlaupinu á 1:38,76 mín.

Í flokki 18-19 ára pilta
Leó Gunnar Víðisson sigraði í stangarstökki þegar hann fór yfir 4,20 m.
Kelvin Adames vann til bronsverðlauna með stökki yfir 3,90 m.
Sveit ÍR varð í öðru sæti í 4*200 m boðhlaupi á tímanum 1:45,87 mín.

Í flokki 20-22 ára pilta
Ívar Kristinn Jasonarson sigraði í 200 m hlaupi á tímanum 22,25 sekúndum.
Helgi Björnsson vann til silfurverðluna í 60 m grindahlaupi á tímanum 9,30 sekúndum og í 200 m hlaupi en þar hljóp hann á 22,72 sekúndum.
Stefán Árni Hafsteinsson sigraði í stangarstökki með stökk yfir 4,20 m.
Ármann Óskarsson fékk silfurverðlaun í stangarstökki en hann stökk yfir 3,0 m.
Boðhlaupssveitin í 4*400 m sigraði á tímanum 3:25,17 mín.

Öll úrslit má finna á mótaforriti FRÍ

Framkvæmd mótsins var í höndum ÍR-inga og tókst hún með ágætum. Við þökkum öllum sem komu að framkvæmdinni kærlega fyrir vel unnin störf. Keppendum þökkum við þátttökuna.