Lesa frétt
8.2.2012

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum um helgina

MÍ 2011 SigurliðMeistaramót Íslends fer fram í Laugardalshöll um helgina. ÍR sendir langfjölmennasta liðið eða 55 manns til keppni, 28 karla og 27 konur. Liðið á titil að verja en ÍR hefur unnið stigakeppni MÍ innanhúss síðast liðin fjögur ár. 

Meðal keppenda er okkar besta fólk.  Þar má meðal annars nefna Huldu Þorsteinsdótuir sem bætti sinn besta árangur í stangarstökki á MÍ 15-22 ára sl. helgi þegar hún fór yfir 4.0 m. Hún er þriðja Íslenska konan sem það hefur gert, aðeins Vala Flosadóttir og Þórey Edda Elísdótt þjálfari Hulda hafa farið yfir þá hæð á undan henni. Jóhanna Ingadóttir sem er að koma aftur inn í keppni eftir langa fjarveru vegna meiðsla og gerði stórgóða hluti í þrístökki á RIG er skráð í þrístökk og langstökk. Aníta Hinrkisdóttir sem  setti nýtt Íslandsmet í 800 m hlaupi á RIG.  Auk þeirra er Arna Stefanía Guðmundsdóttir sem nýverið var útnefnd íþróttakona ÍR skráð í 6 greinar og  Dóróthea Jóhannesdóttir, Fríða Rún Þórðardóttir og  Kristín Lív Svabo Jónsdóttir mæta einnig ásamt fjölmargra annarra ÍR-kvenna. Karlaliðið okkar er meðal annars skipað þeim  Einari  Daða Lárussyni sem keppir í kúluvarpi ásamt fjórum ungum og efnilegum ÍR-ingum. Spretthlaupararnir Ívar Kristinn Jasonarson, Juan Ramón Borges, Helgi Björnsson, Sigurður Lúðvík Stefánsson og Björn J Þórsson mæta sterkir til leiks og stefna á bætingar. Langhlaupararnir okkar sem kepptu um síðustu helgi á Evrópumóti félagsliða í víðavangshlaupum þeir Þorbergur Ingi Jónsson,  Tómas Zoega, Arnar Pétursson og Reynir Bjarni Egilsson keppa allir um helgina og einnig Ólafur Konráð Albertsson, Snorri Sigurðsson og Snorri Stefánsson. Mark W. Jonson mætir til leiks en hann fór yfir 5 m í stangarstökkinu á RIG og stefnir örugglega að því að bæta um betur. Það er því ljóst að það á ekki að láta titilinn eftir baráttulaust.

Fjöldi ungra og efnilegra íþróttamanna frá ÍR taka nú þátt í MÍ fullorðinna í fyrsta skipti sem sýnir að unglingastarfið heldur áfram að skila keppnisfólki upp í meistaraflokk. Yngstu keppendur ÍR eru fæddir árið 1997 en sá elsti 1970. Aldursmunurinn í þessu samhenta liði er því 27 ár.

Við hvetjum alla til að koma í höllina og hvetja okkar frábæra íþróttafólk til dáða. Aðgangur er ókeypis.