Lesa frétt
1.2.2012

ÍR ingar í Evrópukeppni

Reynir, Arnar, Þorbergur og Tómas skipa lið ÍR í Evrópukeppninni í víðavangshlaupum 2012ÍR-ingar senda lið í Evrópukeppni félagsliða í víðavangshlaupum en ÍR á keppnisréttinn sem ríkjandi Íslandsmeistarar. Keppnin fer fram í Castellon á Spáni 5. febrúar. Þeir sem skipa liðið eru: Reynir Bjarni Egilsson, Arnar Pétursson, Þorbergur Ingi Jónsson og Tómas Zoega. Þess má geta að ÍR tók þátt fyrst íslenskra liða í þessari keppni 1976 en þá fór keppnin einnig fram á Spáni.