Lesa frétt
7.2.2012

ÍR er að leita að íþróttafræðing eða þjálfara með reynslu fyrir Íþróttaskóla 3-6 ára barna

Íþróttaskólinn þarf á nýjum íþróttakennara að halda til að klára önnina sem stendur fram í miðjan maí. Fyrsti tími yrði 1.mars. Um þrjá hópa er að ræða (tvo 3-4 ára og einn 5-6 ára). Einn hópur er á laugardagsmorgnum en hinir tvo seinniparta í miðri viku. Hver tími er 45 mínútur.

Aðstaðan er í íþróttasal að Skógarseli 12, 109 Reykjavík.

Í Íþróttaskólanum reyna börn á jafnvægi, fín- og grófhreyfingar, samhæfingu og líkamlegan þroska sem og félagslegan. Þau læra að bera virðingu fyrir öðrum og vinna saman. Skynfærin þarf einnig að örva og samhæfa og í leikfimi sem þessari reynir á þau öll.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún íþróttafulltrúi ÍR í síma 864-0061 eða sigrun@ir.is