Lesa frétt
30.1.2012

Dregið hefur verið í happdrætti Þorrafagnaðar ÍR

Þorranefnd ÍR þakkar öllum ÍR -ingum kærlega fyrir yndislega kvöldstund laugardaginn 28.janúar. Í fyrsta sinn í sögu ÍR var haldinn Þorrafagnaður af stærri gerðinni. Í fagurskreyttan íþróttasal Seljaskóla sátu 474 gestir til borðs og svo héldu ansi margir á dansleikinn eftir matinn.
Allt listafólkið sem fram kom á dansgólfi og á sviði eiga þakkir skilið fyrir faglega og flotta framkomu sem gladdi andlitin úti í sal.
Mikil og flott vinningaskrá var í happdrættinu og seldust að lokum allir þeir 5000 miðar sem prentaðir voru. Nú hefur verið dregið og birtast númerin hér. Farið vel yfir miðana og ef tölurnar samræmast fæst tiltekinn vinningur í skiptum fyrir miðann. Ath. að sækja þarf vinninga fyrir 1.mars á skrifstofu ÍR.