Lesa frétt
7.2.2010

ÍR-ingar með 10 Íslandsmeistaratitla á MÍ innanhúss í frjálsíþróttum og Íslandsmeistarar félagsliða.

ÍR varði titil sinn sem Íslandsmeistarar félagsliða á Meistaramóti Íslands innanhúss um helgina. Á síðari degi mótsins unnust fjórir titlar í einstaklingsgreinum, Arna Stefanía Guðmundsdóttir í 200 m hlaupi, Fanney Björk Tryggvadóttir í stangarstökki, Jóhann Ingadóttir í þrístökki og Snorri Sigurðsson í 800 m hlaupi. Þá vann ÍR sigur í 4x400 m boðhlaupi karla og kvenna. Nánar á síðu frjálsíþróttadeildar.