Lesa frétt
6.2.2010

Fjórir ÍR-ingar Íslandsmeistarar á fyrri degi MÍ innanhúss. ÍR með örugga forystu í stigakeppninni.

Jóhanna Ingadóttir varð Íslandsmeistari í langstökki með 5,82 m, Fríða Rún Þórðardóttir í 1500 m hlaupi á 4:36,29 sek., Helga Þráinsdóttir í hástökki með 1,64 m og  Snorri Sigurðsson í 400 m hlaupi á 50:44 sek. Í fyrra unnu ÍR-ingar alls 3 titla og er þetta því mjög góð uppskera á fyrri degi. Margir fleiri stóðu  stóðu sig vel og má búast við enn fleiri titlum á síðari degi mótsins. Í stigakeppninni er ÍR með örugga forystu og er langt í næsta lið, Breiðablik. Arna Stefanía Guðmundsdóttir og Aníta Hinriksdóttir settu aldursflokkamet í sínum greinum. Nánari umfjöllun á síðu frjálsíþróttadeildar.