Lesa frétt
3.2.2010

Nýr þjálfari meistaraflokks karla

Viggó Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla í handbolta hjá ÍR. Stjórn deildarinnar er mjög ánægð með að hafa fengið Viggó til liðs við félagið en Viggó er sem kunnugt er þaulreyndur þjálfari og kemur eflaust til með að geta miðlað af reynslunni sinni til leikmanna félagsins.
Við bjóðum Viggó velkominn til starfa hjá okkur.

Stjórn Handknattleiksdeildar ÍR.