Lesa frétt
30.1.2010

Unglingadómaranámskeið knattspyrnudeildar ÍR 2010.

Um að ræða rúmlega tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Sá sem lýkur þessu námskeiði, öðlast réttindi til þess að dæma í 4. flokki og neðar og að auki verið aðstoðardómari í 3-2. flokki karla og kvenna. Dómarar með virk félagsskírteini og útfyllt dómarakort eiga kost á því að fá frítt inn á alla leiki í öllum deildum og einnig á landsleiki Íslands á Laugardalsvelli.

Námskeiðið er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.

Námskeiðið er ókeypis. Skráning er hafin hjá magnus@ksi.is og irknattspyrna@hotmail.com

 

ÁFRAM ÍR