Lesa frétt
29.1.2010

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 15 til 22 ára innanhúss um helgina

Þetta er mesti fjöldi sem ÍR hefur nokkurn tímann sent í þessa keppni og mesti fjöldi sem keppt hefur frá einu félagi á þessu móti. Heildar fjöldi keppenda er 218 og skráningar 678 þannig. Að meðaltali er hver keppandi að taka þátt í  þremur greinum þessa tvo keppnisdaga.

Spennandi verður að fylgjast með keppninni um helgina en ungmennin ætla sér öll stóra hluti og bætingar en ekki síðuar að vera ÍR og sjálfum sér til sóma í skemmtilegri og drengilegri keppni.

Flestir keppendur eru í 60m hlaupum í öllum flokkum þar sem 25-30 keppendur hlaupa í hverjum flokki, einnig er góður fjöldi  í meyjaflokki í langstökki og 200m hlaupi drengja.

 

Mótið hefst kl. 11 á laugardag og stendur til kl. 15:40. Á sunnudag hefst keppni snemma morguns eða kl. 9:30 en mótinu líkur um kl. 16 þegar Íslandsmeistari félagsliða 15-22 ára verður krýndur.

 

Hægt verður að fylgjast með úrslitum mótsins á www.fri.is / mót / mótaforrit og á heimasíðu deildarinnar þar sem samantekt verður gerð að loknum hvorum keppnisdegi. Þó er tilvalið að líta við í höllinni og fylgjast með spennandi keppni upprennandi afreksmanna framtíðarinnar og hvetja okkar fólk til dáða.

Áfram ÍR