Lesa frétt
24.1.2010

Mótsmetaregn á 14. Stórmóti ÍR

Jóhanna Ingadóttir ÍR var atkvæðmest í kvennaflokki, en hún sigraði í langstökki með 5,61m, þrístökki 12.43m og 60m grindahlaupi á 9,00 sek og setti mótsmet í tveimur síðarnefndu greinunum.  ÍR konur voru atkvæðamiklar í stökkgreinunum því því auk sigra Jóhönnu sigraði hin efnilega Hulda Þorsteinsdóttir  ÍR í stangarstökki með 3,65m og Helga Þráinsdóttir  ÍR í hástökki með stökk upp á 1,68m.  Báðar bættu sinn persónulega árangur.   Ásdís Hjálmsdóttir Ármanni sigraði í einvígi við Helgu Margréti Þorsteinsdóttur Ármanni í kúluvarpi en þær köstuðu 14,21 og 14,09m og Ásdís setti mótsmet.  Fríða Rún Þórðardóttir hljóp sitt besta 3000m hlaup í fimm ár og setti mótsmet á 9:57,33mínútum og Íris Anna Skúladóttir Fjölni sigraði í 1500m hlaupi á 4,59,21 sem einnig er mótsmet.  Efnilegar ungar stúlkur sigruðu í 200m, 400m og 800m og settu allar mótsmet.  Dóróthea Jóhannesdóttir ÍR hljóp 200m á 25,76sek, Erna Dís Gunnarsdóttir ÍR 400m á 60,36 og Stefanía Valdimarsdóttir hljóp 800m á 2:19,63 mín.

Í karlakeppninni sigraði Arnór Jónsson Breiðabliki í 60m og 200m og setti mótsmet í báðum greinum.  Hljóp 60m á 7.04 og 200m á 22,73sek.  Félagi hans úr Breiðabliki Stefán Guðmundsson sigraði í 3000m hlaupinu á nýju mótsmeti 8:37,58 mín og ungur og efnilegur hlaupari úr FH Þorkell Einarsson sigraði í 400m hlaupinu á nýju mótsmeti 50,35 sek.  Þá náði Þorsteinn Ingvarsson HSÞ lengsta stökki ársins í langstökki þegar hann sigraði með stökki upp á 7,33m sem er hans besti árangur innanhúss.

ÍR-ingar mótshaldararnir sendu 225 keppendur til leiks sem er mesti fjöldi sem eitt félag hefur sent til keppni í einu og sama mótinu frá upphafi frjálsíþróttastarfs á Íslandi.  Blikar, FH-ingar, Skagfirðingar og Selfossbúar sendu einnig mjög öfluga og marga keppendur til leiks.  Þá kepptu 22 Færeyskir unglingar sem settu skemmtilegan svip á mótið.

Framkvæmd mótsins tókst mjög vel þrátt fyrir metfjölda keppenda og þar af leiðandi mjög flókna framkvæmd en alls var keppt á 14 mismunandi stöðum samtímis á laugardagsmorgninum í Laugardalshöllinni.

 Um 120 sjálfboðaliðar stóðu vaktina við framkvæmd mótsins um helgina.