Lesa frétt
19.1.2010

Stórmót ÍR 23.–24. janúar 2010

Frjálsíþróttadeild ÍR heldur Stórmót ÍR í Laugardalshöllinni helgina 23.–24. janúar n.k. Mótið er öllum opið og verður keppt í flokkum 8 ára og yngri til karla- og kvennaflokks. Í flokki 8ára og yngri verður þrautabraut samkvæmt nýju keppnisfyrirkomulagi IAAF.

Skráning: Skráning fer fram til miðnættis 19. janúar í mótaforriti FRÍ
Félög eru hvött til að skrá þátttakendur tímanlega - mikilvægt að skrá alla aldurshópa inn í mótaforritið.
Hópa í þrautabrautina og liðsstjóra þrautabrautar þarf að senda á margret1301@gmail.com á sama tíma.

Þátttökugjöld: 10 ára og yngri: kr. 1.500.- fyrir hvern þátttakanda
11 ára og eldri: kr. 2.000.- fyrir hvern þátttakanda

Uppgjör: Þátttökugjöld greiðist inn á reikning Frjálsíþróttadeildar ÍR: 0115-26-14004 kt :421288-2599

Hvert félag geri upp fyrir keppendur sína í einni heild. Kvittun sendist á helgaje@internet.is

Verðlaun: Allir keppendur í flokki 10 ára og yngri fá þátttökuverðlaun.
Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fyrstu 3 sæti öðrum flokkum

Tímaseðill: Sjá að neðan. Athugið að endanlegur tímaseðill verður gerður eftir að skráningu lýkur.

Upplýsingar: Bryndís/Jóhannes (mótstjórn); bryndis.ernstdottir@marel.com / johannes@isam.is S:825-8208 /  856-2762
Felix (skráningar) felix@posthusid.is S: 669-8315
Margrét (þrautabraut) margret1301@gmail.com S:8212172