Lesa frétt
13.1.2010

Break og HIP HOP dansnámskeið að byrja í ÍR heimilinu

Break og HIP HOP dansnámskeið að byrja í ÍR heimilinu!!
ATH. Við tökum Frístundakortið!!
HIP HOP fyrir stelpur (8-12 ára)
HIP HOP og Michael Jackson fyrir stráka (8-12 ára)
HIP HOP fyrir bæði stelpur og stráka (13 ára og eldri)
BREAK fyrir bæði stráka og stelpur (6-12 ára)
BREAK fyrir bæði stráka og stelpur (13 ára og eldri)

Skráning og upplýsingar hjá Hrafnhildi í s:822-6325 og á www.natasha.is

Kennari: Natasha Royal
Natasha byrjaði að kenna hér á landi 1998.
Hún er fyrsti HIPHOP kennari sem kennir á Íslandi,
enginn Íslendingur hafði farið í svona dans áður.
Hún vildi gefa fólki innblástur í dans og
deila með þeim hennar bakgrunni og sérstaka stíl í „Streetdance“.

BREIKDANS
Break gjörbreytti fátækrahverfum New York ásamt Hip Hop menningunni sem varð til að klíkukrakkarnir fóru að kljást með rappi og dansi frekar en kylfum og sveðjum. Það þróaðist með James Brown byltingunni á 8. áratugnum en varð fyrst vinsælt á heimsvísu gegnum tónlistarmyndbönd og kvikmyndir um miðjan 9. áratuginn. Breakið tekur til sín hreyfingar úr m.a. capoiera, steppdansi, kung-fu, lindy-hoppi og fimleikum. Þó það sjáist minna núna en þegar æðið var sem mest kringum '86-'88, er það mun vinsælla og sífellt fleiri og stærri keppnir koma á hverju ári á heimsvísu auk þess sem fjöldi iðkenda margfaldast.

HIP HOP DANS
Hiphop dans er nýjasta æðið á Íslandi í dag!! Á námskeiðunum lærir þú "The old school" og "The new school", það er semsagt gömlu klassísku danssporin í Hiphop og svo það allra ferskasta og nýjasta í Hiphop í dag ásamt því að læra "choreography", þ.e. dansrútínu.
Hiphop dans hreyfingar/spor eru ekki notuð einungis með Hiphop tónlist, það er hægt að nota allar gerðir af tónlist eins og R&B, Soul, Funk, Pop o.s.frv. Svo það má segja að það sé alveg frá "slow to fast music".

Hiphop dans snýst um að stjórna þínum eigin líkamshreyfingum þegar þú ert að dansa við Hip Hop tónlist og tjá þig um leið og þú dansar við tónlistina. "So it´s about expressing your body in style to the music".