Lesa frétt
13.6.2012

Skyndihappdrætti

Happdr.Knattspyrnudeildin efnir til happdrættis til fjáröflunar fyrir alla flokka deildarinnar. Þetta er sannkallað skyndihappdrætti enda verða vinningar dregnir út þann 17. júlí n.k.  Vinningar eru ekki af verri endanum og verði hans stillt í hóf, aðeins 1.000 kr.   Smellið á myndina hér til vinstri til að sjá hvernig happdrættismiðinn lítur út.

Þið megið búast við að yngri iðkendur okkar banki upp á og freisti þess að selja ykkur miða.  Vonum við að þið takið vel á móti þeim eins og endra nær.  Eins og kunnugt er kostar það sitt að iðka knattspyrnu og reynt er að létta undir með því að efna til ýmissa fjáröflunarviðburða.

Upplýsingar um vinningsnúmer verða birt hér á síðunni eftir útdrátt þann 17. júlí 2012. 

Miðar eru til sölu í gegnum foreldraráð allra flokka og einnig á skrifstofu ÍR.