Lesa frétt
30.4.2012

2.fl.kv. í knattspyrnu vann sinn riðil í Faxaflóamótinu

Sameiginlegt lið ÍR og Fylkis í 2. fl. kvenna sem stofnað var núna á vormánuðum fer vel af stað en stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og unnu sinn riðil í Faxaflóamótinu. Mótið endaði með hreinum úrslitaleik milli Fylkir/ÍR og ÍBV þar sem jafntefli dugði okkar stelpum. Eftir að Fylkir/ÍR hafði verið mun sterkari aðilinn í leiknum skoruðu ÍBV óvænt mark úr einni af fáum skyndisóknum þeirra er um 4 mínútur voru eftir af leiknum. Með harðfylgi jöfnuðu stelpurnar okkar leikinn á síðustu mínútu leiksins með marki sem dugði til að þær enduðu sem sigurvegarar riðilsins. Fín byrjun þetta og það verður gaman að fylgjast með þessu liði í sumar.