Lesa frétt
23.1.2012

Arna Stefanía Íþróttakona ársins og Hafþór Harðarson Íþróttamaður ársins

Sunnudaginn 22.janúar var kjör á Íþróttamanni og Íþróttakonu ÍR fyrir árið 2011. Fyrir valinu varð frjálsíþróttakonan Arna Stefanía Guðmundsdóttir og keilumaðurinn Hafþór Harðarson.
Arna Stefanía vann m.a. besta afrek ÍR kvenna samkvæmt alþjóðlegri stigatöflu árið 2011 þegar hún hljóp 400 m. innanhúss á 54,73 sek., en það er jafnframt þriðji besti árangur íslenskrar konu í þeirri grein frá upphafi. Arna Stefanía hefur m.a. keppt á Norðurlandamóti unglinga og Heimsmeistaramóti 17 ára og yngri.
Hafþór hefur m.a. afrekað að leika fullkominn keiluleik (300) alls tíu sinnum, náð bronsi á Heimsmeistaramóti ungmenna, unnið sér inn stig á stigalista Evrópska keilusambandsins, hlotið silfur á sænska meistaramótinu, unnið íslandsmeistaratitil einstaklinga í hópi fullorðinna o.fl.