Lesa frétt
21.1.2012
RIG lokið, Aníta Hinriksdóttir stal senunni með nýtt Íslandsmet í 800m kvenna
Aðrir ÍR-ingar sem hlutu verðlaun ídag voru Mark W. Johnson sem sigraði í stangarstökki með 5 m slétta. Þorbergur Ingi Jónsson sigraði í 3000m á 8:41,19 mín en annar í mark varð Arnar Pétursson nýr liðsmaður ÍR en hann hljóp á 9:14,95 mín. Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir varð 2. í 60m bætti sig úr 7,85 sek í 7,78 sek. Ivar Kristinn Jasonarson varð 3. í 400m hljóp glæsilegt hlaup á 48,85 sek. Hann skellti sér síðan beint í 4 x 200 m boðhlaup með félögum sínum Juan Ramón Borges, Helga Björnssyni og Sigurði Lúðvík Stefánssyni en þeir félagar urðu í 2. sæti á 1.31, 95 mín aðeins 1 sek á eftir sigursveit UMSK.
Snorri Sigurðsson og Björn Margeirsson háðu harði keppni í 800m en Björn kom á undan í mark en Snorri annar á 1:54,08 mín, Snorri Stefánsson hljóp í annað sinn í röð undir 2 mín í 800m þegar hann kom í mark á 1:58 mín. Sigurðu Lúðvík Stefánsson, nýr liðsmaður í ÍR varð 2. í 60m grindahlaupi han hljóp á 8,78 sek. Í langstökki kvenna kom Jóhanna Ingadóttir til baka eftir meiðsli og gerði hún sér lítið fyrir og stökk 5,90 m sem dugði henni í flott 2. sæti. Frábært að Jóhanna skuli vera komin aftur. Kristín Lív Svabo Jónsdóttir stóð sig vel í hástökkinu stökk 1.67 m og sýndi einstaklega skemmtilegan keppnisanda og gleði sem var til fyrirmyndar.
Margrét Hlín Harðardóttir hljóp glæsilegt 800m hlaup í 13-14 ára flokki kom 3. í mark á 2:32,43 mín
Stefán Árni Hafsteinsson varð 3. í stangarstökki með 4.40 m.
12 verðlaun féllu ÍR-ingum í skaut, 2 gull, 7 silfur og 3 brons og gefur það góð fyrirheit um framhaldið en fjöldi móta er framundan alveg til loka febrúarmánuðar.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetuer adipiscing elit, sed diam nonummy nibh euismod tincidunt ut laoreet dolore magna aliquam erat volutpat. Ut wisi enim ad minim veniam, quis nostrud exerci tation ullamcorper suscipit lobortis nisl ut aliquip ex ea commodo consequat. Duis autem vel eum iriure dolor in hendrerit in vulputate velit esse molestie consequat, vel illum dolore eu feugiat nulla facilisis at vero eros et accumsan et iusto odio dignissim qui blandit praesent luptatum zzril delenit augue duis dolore te feugait nulla facilisi. Nam liber tempor cum soluta nobis eleifend option congue nihil imperdiet doming id quod mazim placerat facer possim assum. Typi non habent claritatem insitam; est usus legentis in iis qui facit eorum claritatem. Investigationes demonstraverunt lectores legere me lius quod ii legunt saepius. Claritas est etiam processus dynamicus, qui sequitur mutationem consuetudium lectorum. Mirum est notare quam littera gothica, quam nunc putamus parum claram, anteposuerit litterarum formas humanitatis per seacula quarta decima et quinta decima. Eodem modo typi, qui nunc nobis videntur parum clari, fiant sollemnes in futurum.