Lesa frétt
30.12.2011

36. Gamlárshlaup ÍR

Á morgun gamlársdag fer fram hið hárlega Gamlárshlaup ÍR í 36. sinn.
Veðurspáin er góð. Gert er ráð fyrir 2 stiga hita, vindi 4 m/sek og skúrum. Að þessu sinni verður hlaupið eftir nýrri leið og hefst hlaupið við Hörpu þar sem aðstæður eru allar aðrar og betri en þær voru þegar hlaupið var ræst í Túngötunni. Hlaupinu lýkur einnig við Hörpuna. Allt verður gert til að aðstæður verði eins góðar og hægt er miðað við árstíma og veðurlag. Öryggi hlaupara og starfsmanna verður í forgangi og lokað fyrir umferð um nyrðri hluta Sæbrautar á meðan á hlaupinu stendur.
Sú hefð hefur skapast að hlauparar mæti í skrautlegum búningum og setur það skemmtilegan svip á hlaupið.

Nú þegar hafa um 380 hlauparar forskráð sig en búist er við að um eitt þúsund hlauparar taka fram hlaupaskóna og ljúka hlaupaárinu með þessu skemmtilega hlaupi.
Forskráningu lýkur á miðnætti í kvöld. Þeir sem forskrá sig fyrir kl. 16:00 í dag geta sótt gögnin sín í anddyri Frjálsíþróttahallarinnar í Laugardal, gengið inn baka til milli kl. 18 og 19:30 föstudaginn 30. des. Annars verða gögn afhent í Hörpunni laugardaginn 31. desember milli kl. 10 og 11:45.
Allar nánari upplýsingar um hlaupið má finna hér á síðunni.