Lesa frétt
29.12.2011

Helga María að gera góða hluti á fyrstu bikarmótum vetrarins

ÍR´ingurinn Helga María Vilhjálmsdóttir sigraði í svigi á öðru bikarmóti Skíðasambandsins sem haldið var í Hlíðarfjalli við Akureyri í dag. Hún varð í öðru sæti í sviginu í gær. Helga María keyrði af miklu öryggi og stóð uppi sem sigurvegari á tímanum 1.33,43 mín. Önnur varð Erla Guðný Helgadóttir á 1.35.40 og í þriðja sæti varð Kolbrún Lilja Hjaltadóttir á 1,37,51 Helga María vann Helgubikarinn sem veittur var þeim keppanda í kvennaflokki sem náði bestum samanlögðum árangri á mótunum í gær og í dag.

Tinna Rut Hauksdóttir endaði í 11. sæti í gær og 10. sæti í dag en þetta eru fyrstu mótin hennar á Íslandi eftir slæmt fótbrot í fyrra.

Stefán Ingi Jóhansson skilaði sér niður í 7. sæti í dag og Sigurður Hauksson í 8. sæti en aðrir ÍR drengir féllu úr keppni í dag. Sigurður Hauksson skilaði sér líka niður í 8.sæti í gær.