Lesa frétt
22.12.2011

Árgangamót - Foreldramót - Áramótamót....

Árgangamót ÍR verður fimmtudaginn 29.desember, haldið í Seljaskóla. Mótið er fyrir alla fullorðna sem einhverntíman hafa komið að fótboltanum í ÍR.
Leikir byrja klukkan 19:00 og verður leikið með mjög frjálsu fyrirkomulagi. Leikir eru 1*12 mínútur og verður leikið á hálfum velli. 4 leikmenn í liði með frjálsum skiptingum. Veitingar frá Vífilfelli verða til sölu á vægu verði. Glæsilegir vinningar verða veitt í mótslok
* sigurvegarar árgangamóts 2011
* tilþrif kvöldsins (utan sem innan vallar)
* mark ársins Ofl. Ofl. Ofl.
Þátttökugjald er 1.000 krónur pr. leikmann. þáttaka tilkynnist á halli@studioh.is eða í síma 770 1500 Látið boð út ganga og virkjum félagana.
Áfram ÍR f.h. Knattspyrnudeildar ÍR Hallgrímur Friðgeirsson mfl.ráð karla