Lesa frétt
6.9.2010

ÍR sigurvegari á Reykjanes Cup

Körfuboltalið ÍR gerði sér lítið fyrir og lagði Fjölni í úrslitaleik á Reykjanes Cup með 98 stigum gegn 91. Þess má geta að  Kelly Beidler leikmaður ÍR var valinn í úrvalslið mótsins og einnig valinn besti maður mótsins.


Það er vonandi að sigurinn í mótinu sé það sem koma skal hjá ÍR í körfubolta en liðið er nú í óða önn að búa sig undir baráttuna í Iceland Express deildinni. Liðið hefur lagt hart að sér í sumar og virðist liðið í frábæru formi þessa dagana undir styrkri stjórn Gunnars Sverrissonar þjálfara. Það er óhætt að segja að veturinn verði spennandi hjá ÍR í körfubolta.