Lesa frétt
5.9.2010

Kristín Birna 2. á sænska meistaramótinu í fjölþrautum og Arna Stefanía með meyjamet

Kristín Birna Ólafsdóttir ÍR varð í 2. sæti á sænska meistaramótinu í fjölþrautum sem haldið var í Huddinge um helgina. Hún hlaut 5363 stig sem er hennar næst besti árangur. Arna Stefanía Guðmundsdóttir varð í 1. sæti í flokki 16 ára og setti glæsilegt meyjamet, 5029 stig og bætti með Helgu Margrétar Þorsteinsdóttur um 34 stig. Þær stöllur voru að bæta sig í mörgum greinum og árangur þeirra lofar svo sannarlega góðu fyrir næsta ár. Kristín Birna var að keppa í sinni fyrstu þraut frá 2008 og greinilega búin að ná sér vel á strik eftir meiðslatímabil.