Lesa frétt
31.8.2010

Fótboltafjör hjá 8.flokki karla á Atlantismóti Aftureldingar í Mosfellsbæ 15.ágúst.

Ég hef sagt í mörg ár að knattspyrna sé lifsins banki. Kynni strákanna af mótinu voru frábær og allir fóru heim með bros á vör og reynslunni ríkari. Foreldrar og forráðamenn drengjana létu sig ekki vanta og hvöttu strákana áfram allan tímann, þrátt fyrir að veðurguðirnir væru okkur ekki hliðhollir. Auðvitað tókum við myndir til minningar um fyrstu skrefin í ÍR-búningnum. Strákarnir stóðu sig frábærlega og lögðu sig 100% fram bæði innan og utanvallar. Það má með sanni segja að framtíðin sé björt í Breiðholtinu og það er klárt að við eigum marga hæfileikaríka leikmenn á þessum aldri.

Viljum þakka foreldrum og iðkendum fyrir samveruna þennan frábæra sunnudag.

Með knattspyrnukveðjum Halldór Þ. Halldórsson yfirþjálfari, Hrannar, Steinar, Ísleifur og Sigurður Þór aðstoðarmenn.

Sjá myndir með því að smella á þessa vefslóð -