Lesa frétt
28.8.2010

Norðurlandameistaramót 19 ára og yngri, Hulda Þorsteinsdóttir Norðurlandameistari

Rétt í þessu varð Hulda Þorsteinsdóttir Norðurlandameistari í stangarstökki með 3,88m eftir harða keppni við Jatta Samela frá Finnlandi þar sem Hulda fór yfir 3,88m í 2. tilraun á meðan Jatta þurfti til þess 3 tilraunir.  Þær felldu svo báðar 3,98 m sem var næsta hæð. Þetta er besti árangur Huldu utanhúss en fyrir átti hún best 3.85m. Til hamingju Hulda og Þórey Edda frábær árangur við erfiðar aðstæður.

Dagur Fannar Magnússon varð 7. í sleggjukkasti með 44,79 m. Dóróthea Jóhannesdóttir varð 8. í 100m á 12,63 sek sem er um 20/100 sek frá hennar besta en vindur var rétt undir löglegum mörkum. Kolbeinn Gunnarsson varð einnig 8. í sínu 100m hlapi en þar var vindurinn langt yfir löglegum mörgkum eða 5,2 m/s.
Örn Dúi hljóp 400m grindahlaupið á 59,77 sek sem er nokkuð frá hans besta enda erfiður vindur á keppnisstað.