Lesa frétt
27.8.2010

Íþróttastarf hjá ÍR í vetur

Nú fara margar deildir innan ÍR að taka við sér eftir sumarfrí og að vanda verður íþróttastarfið öflugt í vetur hjá ÍR en auk allra þeirra deilda sem eru innan ÍR bjóðum við einnig uppá Skokkhóp, leikfimi, íþróttaskóla fyrir börn svo eitthvað sé nefnt.Það má með sanni segja að hjá ÍR geti allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Verið er að setja saman stundartöflurnar og verða þær allar komnar á netið í byrjun næstu viku en þær eru nú þegar flestar komnar inn.