Lesa frétt
26.8.2010

Leikur hjá meistaraflokki karla í knattspyrnu

Laugardaginn 28.ágúst fá ÍR-ingar Þór í heimsókn. Þór er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með 34 stig en ÍR er í fimmta sæti með 29 stig. Það er því um toppslag að ræða. Þessi leikur er eins og gefur að skilja mikilvægur fyrir bæði lið og verður þetta því hörkuleikur milli tveggja sterkra liða. Leikurinn hefst klukkan 14:00 á ÍR-velli og það er ekkert því til fyrirstöðu fyrir fólk að mæta á völlinn og styðja við ÍR.
ÍR – Þór, kl.14:00 á ÍR-velli.. ÁFRAM ÍR!