17.8.2010
Norðurlandameistaramót 19 ára og yngri, ÍR með 14 keppendur
Norðurlandameistaramót 19 ára og yngri fer fram á Akureyrarvelli helgina 28-29. ágúst nk. Ísland sendir sameiginlegt lið með Dönum eins og undanfarin ár en keppt er í stigakeppni milli landanna og eru tveir í grein frá hverju landi nema einn frá Íslandi og einn frá Danmörku.
Mikið er lagt upp úr einstaklingskeppninn og hlítur sigurvegarinn í hverri grein nafnbótina "Norðurlandameistari" en það er ekki lengra síðan en í fyrra að Einar Daði Lárusson sigraði með glæsibrag í 400m grindahlaupi.
14 ÍR-ingar skipa 32 manna unglingalandslið Íslands, glæsilegt það en eftirfarandi ÍR-ingar hafa verið valdir til keppni á Norðurlandameistaramótinu:
Adam Þór Þorgeirsson, boðhlaup
Aníta Hinriksdóttir, 1500m og 3000m
Arna Stefanía Guðmundsdóttir, 200m, 400m og boðhlaup
Björg Gunnarsdóttir, 800m, boðhlaup
Dóróthea Jóhannesdóttir, 100m og boðhlaup
Hjalti Geir Garðarsson, kringlukast
Hulda Þorsteinsdóttir, stangarstökk
Ívar Jasonarson, boðhlaup
Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir, boðhlaup
Juan Ramón Borges Bosque, langstökk
María Felixdóttir, sleggjukast
Snorri Stefánsson, 800m
Stefán Árni Hafsteinsson, stangarstökk
Valdís Anna Þrastardóttir, spjótkast
Einn af þjálfurum liðsins kemur úr röðum ÍR-inga, það er Gunnar Páll Jóakimsson sem mun sjá um millivegalengdir- og langhlaup.
Óskum þessu unga afreksfólki og deildinni til hamingju með valið og óskum þeim góðs gengis í undirbúningi fyrir mótið.
Náið verður fylgst með fréttum af mótinu í aðdraganda þess hér á síðunni og netslóðin birt þegar heimasíða mótsins hefur verið opnuð.