Lesa frétt
12.3.2010

UNGLINGAMEISTARMÓT ÍSLANDS Á SKÍÐUM

Kæru skíðamenn

Sökum snjóleysis í Bláfjöllum og Skálafelli er ljóst að ekki verður haldi Unglingameistaramót þar þetta árið.  Skíðafélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa lagt mikið á sig við undirbúning  við að gera þennan atburð sem eftirminnilegastan.  SKRR mun færa mótið til Siglufjarðar með samstarfi við heimamenn og vonar að dagskráin sem veður sé áhugaverð og skemmtileg. 

Meðfylgjandi er dagskrá mótsins og skráningareyðublað fyrir keppendur og aðstandendur.

Mótið hefst á Fimmtudeginum 18. mars með setningu.  Keppt verður föstudag og laugardag í hefðbundnum greinum en á sunnudeginum ljúkum við mótinu með boðgöngu og samhliðasvigi.

Við bendum á Rauðku, Egil, í síma 893-5059 ef félögin eru að leita að húsnæði en hann sér um leigu á húsnæði á Siglufirði.

Formaður skíðafélagsins heitir Rósa og er með síma 845-4223

Við höfum gert samning við heimamenn um mat, það er kvöldmat á föstudegi og pizzaveislu á laugardegi auk morgunnmatar á föstudegi til sunnudags og er skráningarblaðið meðfylgjandi með reiti til að merkja við þá sem óska eftir þessari þjónustu.  Heildar matarpakkinn kostar 5400 á manninn.  Við gerum ráð fyrir því að allir keppendur greiði fyrir pizzaveisluna.   Kosturinn við þetta er að skíðafélögin þurfa þá eingöngu að hugsa fyrir nesti í fjallinu.  Auk þess þá hittast krakkarnir yfir matnum og ræða málin.  Greiðslur fyrir þetta  þarf að inna af hendi á staðnum.

Skíðapassi fyrir lengda helgi er 1500 krónur á manninn, samkvæmt upplýsingum frá staðarhaldara. Keppendur, þjálfari og fararstjóri fá lyftu-passa frá SKRR afhenta á fararstjórafundi.

Undirritaður óskar eftir skráningu sem fyrst á meðfylgjandi skjali og lýkur skráningu á mánudag.

Þar sem aðstæður eru  þannig að öll erum við gestir á svæði Siglfirðinga þá óskar undirritaður eftir því að þeir aðstandendur sem geta,  aðstoði keppnishaldara við þau verkefni sem tilfalla.

DAGSKRÁMÓTSINS HÉR