Lesa frétt
9.3.2010

Aðalfundur Taekwondo Deildar

Aðalfundur Taekwondo Deildarinnar verður haldinn fimmtudaginn 11. mars. Við byrjum kvöldið á Showdown milli sem hefst kl. 19:00 við munum svo byrja fundinn strax eftir sturtu. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Það er mikilvægt að allir gefi sér tíma til að mæta á fundinn.

Fundarefni er samkv. lögum félagsins:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins.
3. Lesnir og skýrðir rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir síðasta almanaksár.
4. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
5. Kosinn formaður.
6. Kosnir aðrir stjórnarmenn og tveir stjórnarmenn til vara.
7. Kosnir fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund félagsins.
8. Ákveðin æfingagjöld.
9. Önnur mál.

F.h. stjórnar
Jakob Antonsson

jakobant@irtaekwondo.net