Lesa frétt
28.2.2010

ÍR Bikarmeistari innanhúss í frjálsíþróttum 2010.

ÍR-ingar voru öruggir sigurvegarar í Bikarkeppni FRÍ innanhúss 2010. ÍR-A lið fékk 132 stig, næst kom sameiginlegt lið Ármanns og Fjölnis með 111,5 stig og í þriðja sæti urðu sigurvegarar síðasta árs, FH með 110,5 stig. Í karlaflokki var  ÍR í öðru sæti, aðeins 4,5 stigum á eftir FH en í kvennaflokki vann ÍR yfirburðasigur með 75 stig, 16 stigum meira en næst lið Fjölnir/Ármann. Á myndinni tekur Fríða Rún Þórðardóttir við kvennabikarnum úr hendi Stefáns Halldórssonar formanns FRÍ. Nánar á heimasíðu frjálsíþróttadeildar.