Lesa frétt
26.2.2010

Boccíamót eldri borgara í ÍR heimilinu

Hópur okkar eldri borgara sem stundar hér leikfimi og boccía undir stjórn Júlíusar Arnarssonar íþróttakennara, skoraði á lið úr Kópavogi og Garðabæ í boccía. Þetta er tilvalið til að auka samskipti milli þessara hópa og íka skemmtileg tilbreyting fyrir þau 20 sem mættu. ÍR býr líka vel að eiga þrjú boccíasett sem keypt voru fyrir styrk sem fékkst fyrir ári frá Menntamálaráðuneytinu.

Lítið mót sem þetta er ágætis undirbúningur fyrir stóru mótin í vor, en það er stórmót haldið á Keflavíkurflugvelli, Reykjavíkurmót og svo Íslandsmót.
Eftir mótið bauð ÍR öllum keppendum upp á kaffi og kræsingar s.s. líf og fjör á öllum aldri í ÍR.