Lesa frétt
15.2.2010

ÍR-ingurinn Eysteinn Þórðarson á besta árangur Íslendings á vetrarólympíuleikunum.

Eysteinn keppti einnig á leikunum í Cortina 1956. ÍR átti öflugan hóp síðamanna á þessum árum og má lesa sögu þeirra í afmælisriti ÍR "Heil öld til heilla" eftir Ágúst Ásgeirsson. Þess má geta að tveir aðrir ÍR-ingar hafa keppt á vetrarólympíuleikunum, feðgarnir Valdimar Örnólfsson og Örnólfur Valdimarsson.

Á myndinni eru frá vinstri: Kristinn Benediktsson og ÍR-ingarnir, Úlfar Skæringsson og Eysteinn Þórðarson.  Úlfar var valinn til þátttöku á leikana 1956 en átti ekki heimangengt vegna vinnu. Myndirnar eru úr bókinni „Fimmtán íþróttastjörnur“ eftir Kristján Jóhannsson.