
“Það er bara eitt Reykjavíkurstórveldi, það kemur alla leiðina úr Breiðholti...”
Stuðningsmannafélag Íþróttafélags Reykjavíkur var stofnað á haustdögum 2008. Er það hugsað til að sameina stuðningsmenn allra deilda innan ÍR. Hugmyndin með félaginu er að mynda betri umgjörð og skapa jákvæða og skemmtilega stemmningu á kappleikjum félagsins þannig að áhorfendur taki virkan þátt í leiknum með leikmönnum.
Stuðningamannafélag ÍR leggur upp með það að virkja sem flesta stuðningsmenn ÍR á kappleikjum. Árið 2008 skapaðist mjög góð stemming á leikjum. Ber þar helst að nefna stemmingu sem myndaðist í kringum frábært gengi körfuknattleiksliðs ÍR veturinn 2007-2008, ásamt frábæru sumri hjá meistaraflokki í knattspyrnu.
Í framtíðinni verður hægt að gerast meðlimur í Stuðningsmannafélagi ÍR og mun skírteini félagsins m.a. veita fólki frían aðgang á heimaleiki félagsins.
Allir ÍR-ingar eru velkomnir í félagið.
Nánari upplýsingar um hvernig gerast á meðlimur verða birtar seinna.
Auk þess eru hugmyndir að nafni fyrir félagið vel þegnar á netfangið: ingibjorg@irsida.is
ÁFRAM ÍR !!!
