Krakkasíðan

Krakkasíðan

Taeki

Hjá Taekwondo deild ÍR er starfræktur öflugur og skemmtilegur barnahópur. Í hópnum æfa krakkar á aldrinum 8-12 ára.

Taekwondo er mjög skemmtileg og spennandi íþrótt sem langflestir krakkar hafa gaman af.
Þessi síða er sérstaklega tileinkuð krökkunum. Hér má nálgast æfingatöfluna, upplýsingar um það hvernig á að byrja í Taekwondo, fréttir af barnastarfinu og sitthvað fleira.

23.11.2011

- Taekwondodýnur

Taekwondodeilin er nú loksins komin í röð þeirra sem eiga og æfa á sérstökum Taekwondodýnum, en deildin er líklega sú eina á Íslandi sem ekki var að æfa á slíkum dýnum. 
Til þess að deildin geti dafnað betur eftir þessa fjárfestingu ætlum við að fara í smá söfun og vonum að iðkendur/foreldrara/forráðamenn taki vel í uppátækið.
Allir iðkendur verða sendir heim með Stresslengjur til að selja ekki er verið að biðja um neinar stórar upphæðir en við vonumst til að fá smá í kassan.  Við tökum líka við frjálsum framlögum, takk fyrir.

Taekwondo-deild ÍR,
Skógarseli 12, 109 Reykjavík
Kt. 580991-1309  Reikn. 1195-26-41360


19.10.2011

- Æfingabúðir helgina 22. okt og 23. okt.

Þessar æfingabúðir eru fyrir alla krakka á aldrinum 10-12 ára og eru nauðsynlegar fyrir þau börn sem hafa áhuga á og getu til þess að keppa á Íslandsmeistaramótinu í tækni laugardaginn 29. okt. Athugið að mótið er ekki ætlað öllum börnum því á tæknimótum þurfa börnin að kunna ákveðin form sem fylgja hverju belti fyrir sig. Laugardaginn 22.okt verða sendar inn skráningar á mótið og verða þær gerðar með samþykki forelda/forráðamanna.

Kobbi og Sigga stjórna æfingum á þessum æfingabúðum og kostar helgin kr. 1.000.-
Með von um að sjá sem flesta, Jakob og Sigga

Dagskrá:
Laugardag 22. Okt
13:30-15:00 Börn 10-12 (Almenn æfing/keppnis poomse)
15:00-16:30 Fullorðnir
16:30-18:00 Börn 10-12 (Stutt skemmtiæfing/keppnis poomse) endað á Kinect bardaga

Kinect Bardagi : http://www.youtube.com/watch?v=p_ewM4GjxP4

Sunnudag 23. Okt
11:00-12:20 Börn 10-12 (Almenn æfing/keppnis poomse)

Íslandsmeistaramót í tækni 2011, 29.okt http://www.tki.is/felog/armann-felog/islandsmot-i-taekni-2011-fyrirkomulag-og-reglur/

Æfingatímar: Vor 2011-2012

 kl.

Mánud.

Þriðjud. 

Miðvikud.

Fimmtud. 

 16:45-17:30

Börn 6-7

 

Börn 6-7

 

 17:30-18:15

Börn 8-9

 

Börn 8-9

 

 17:30-18:50


 


 Börn 10+

 17:50-18:80


 Börn 10+