n1_logo_grunni

Lesa frétt
7.5.2012

Seinustu æfingar og beltapróf 10-13 ára

Seinustu æfingar hjá 10-13 ár verða fimmtudaginn 10. maí. 
Taekwondo deild ÍR vill þakka öllum iðkendum fyrir skemmtilegan vetur og vonumst til að sjá sem flesta næsta haust.
Beltapróf, þriðjudaginn 15. maí fer fram beltapróf hjá þessum hóp.

Listi próftakenda hefur verið sendur á foreldra/forráðamenn.

Einnig hefur verið sendur póstur með kennsluefni til upprifjunar fyrir iðkendur.
 
Mikilvæg atriði varðandi beltapróf
Gerðar eru ákveðnar kröfur á kunnáttu fyrir hvert beltapróf og er alltaf tekið tillit til þess að þetta eru börn og ekki hægt að gera nákvæmlega sömu kröfur til þeirra eins og fullorðinna, þó svo að börn hafi sömu námsskrá og fullorðnir þá eru fleiri skref fyrir börn heldur en fullorðna, 13 belti fyrir börn en 8 belti fyrir fullorðna.

Þriðjudaginn 15. maí fer fram beltapróf þessum hóp.
Ekki eru allir sem fá að fara í þetta beltapróf. Þetta er gert til þess að mæta auknum kröfum, sérstaklega fyrir þá nemendur sem eru komnir með lituð belti.

Prófið verður frá 17:30
  • Mikilvægt er að mæta tímanlega til þess að innrita sig í prófið, alls ekki síðar er 17:15
  • Gert er ráð fyrir að prófið taki 2 tíma
Það er algjört skilyrði fyrir þátttöku í prófinu að búið sé að ganga frá æfingargjöldum fyrir tímabilið. Þeir sem ekki eru ennþá búnir að því vinsamlega gangið frá því strax hjá gjaldkera ÍR í síma 587-7080 (Elfa) eða e-mail, elfa@irsida.is. Einnig er hægt að hafa samband við gjaldkera Taekwondo deildar, Guðna á e-mail gudni@mannvit.is
Foreldrum og forráðamönnum er velkomið að fylgjast með prófinu en þó með þeim skilyrðum að þeir séu í salnum allan tímann því stöðugt ráp truflar krakkana sem eru að taka próf.
Próftökugjald er kr. 2.500 og greiðist annað hvort hjá gjaldkera eða á staðnum. Ef greitt hjá gjaldkera, vinsamlega hafa greiðslustaðfestingu meðferðis.

Kveðja, Jakob (823-4074), Jóhann, Óli Björn og Sigga, þjálfarar barnahóps