23.10.2009
Allan Olsen 6-8 nóv
Allan Olsen er á leiðinni til okkar helga 6.-8. nóv.
Master Allan er með 5. dan og kemur frá Danmörku en
hann er orðinn flestum ÍR-ingum að góðu kunnur enda er hann búinn að
koma oft til okkar. Þarna er á ferðinni Taekwondo-maður í mjög háum
gæðaflokki og það er gríðarlega gagnlegt, lærdómsríkt og gaman að æfa
undir hans stjórn.
Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta þrátt fyrir skamman fyrirvara.
Hér kemur æfingaplan helgarinnar.
Föstudagur
kl. 17:30 Byrjendur (90) / Beginers
kl. 19:00 Framhald (90) / Advanced
kl. 21:00 Fjölmennum út að borða
Laugardagur
kl. 09:00 Framhald (90) / Advanced
kl. 10:30 Byrjendur (90) / Beginers
kl. 12:30 Bjóðum upp á veitingar/ Eat something
kl. 15:00 Framhald (90) / Advanced
kl. 16:30 Byrjendur (90) / Beginers
Sunnudagur
kl. 09:00 Sameiginleg æfing (120) / Joined Training
Gera má ráð fyrir ca. 90 mín. æfingum.
*Föstudagskvöldið verður nánar auglýst.
Þátttökugjald fyrir helgina:
Fullorðnir kr. 3000,-
Gjaldið á að greiða á fyrstu æfingu (föstudag), eða með því að
leggja inn á reikning deildarinnar og koma með útprentaða kvittun fyrir
greiðslu á fyrstu æfinguna.
Reikn. 1195-26-41360
Kt. 580991-1309
Munið:
- Að ávarpa Master Allan með réttum titli: Sabomnim og hneigja sig fyrir honum
- Að mæta stundvíslega á allar æfingarnar
- Að drekka nóg vatn yfir helgina og fá nægan svefn til að endast út alla helgina.
- Leggja sig allan fram og verum jákvæð og hress!
Athugið að dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.
Sýnum góðan liðsanda, mætum hress og kát!