n1_logo_grunni

Lesa frétt
19.1.2012

Sjoppumál á Bikarmóti

Þar sem ÍR er að halda svona stórmót í fyrsta skipti þá verðum við foreldrar að hjálpast að með að standa vaktina í sjoppunni.
Ljóst er að þetta er sannkallað stórmót og eru um 200 manns skráðir í keppni.  Á laugardag byrjar keppnin kl. 9 og stendur væntanlega fram til kl. 18.  Þá eru 130 keppendur skráðir.  Á sunnudag byrjar keppnin kl. 9 og klárast trúlega uppúr kl. 17.
Þetta kallar á viðveru okkar báða dagana og til að öll vinnan lendi ekki á örfáum aðilum verð ég að kalla eftir ykkar hjálp við að baka og hjálpa til í sjoppunni, tína rusl og fleira tilfallandi þessa daga.  Við munum einnig sjá um hádegismat fyrir dómara og starfsfólk c.a. 30 manns.

Við ætlum selja samlokur, kleinur, ávexti, gos og hvers kyns bakkelsi sem þið getið töfrað fram þessa daga, gjarna mætti það vera eitthvað sem allir borða og auðvelt er að búa til eins og muffins og skúffukökur. Sum ykkar eru eflaust líka flink að gera ostaslaufur og pizzusnúða og væri ekki verra að fá svoleiðis.

Ég myndir gjarnan vilja að þið senduð mér póst yfir ykkar framlag í bakstri og sjoppu og þá myndi ég gjarnan miða við að hvert foreldri stæði í sjoppunni c.a.3 - 4 tíma eða eins og hægt er og sendi mér uppl. um hvorn daginn þið mynduð vera og á hvaða tímabili.

T.d.   Elfa s. 6623474 mamma Klöru  kem með 1 skúffuköku og 20 muffins á laugardag og ætla að vinna sunnudag kl. 11 - 14.

Ég myndi gjarna vilja fá allar veitingar sem þið ætlið að koma með uppí Austurberg á meða á mótinu stendur.
Ef þið þekkið einhvern sem gæti reddað mjög ódýru eða gefins nammi eða einhverju til að selja væri það frábært !

Við ætlum að hittast á morgun kl. 17:30 í ÍR heimilinu og klára að raða okkur á vaktir og væri frábært ef þið sæjuð ykkur fært að mæta og hitta okkur sem þegar hafa meldað sig í fjörið.

Keppendum er skipt uppí flokka og misjafnt hvenær krakkarnir mæta og verður það kynnt fyrir ykkur fljótlega af þjálfurum. 

Með von um fljót og góð viðbrögð.
Margrét Elfa
s. 6623474
elfa@skotvis.is