Lesa frétt
24.3.2009

Aðalfundur Taekwondodeildar ÍR

Aðalfundur Taekwondodeildar verður haldinn fimmtudaginn 26. mars í ÍR-heimilinu kl. 21.00

Fundarefni er samkv. lögum félagsins:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins.
3. Lesnir og skýrðir rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir síðasta almanaksár.
4. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
5. Kosinn formaður.
6. Kosnir aðrir stjórnarmenn og tveir stjórnarmenn til vara.
7. Kosnir fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund félagsins.
8. Ákveðin æfingagjöld.
9. Önnur mál.
 
Stjórn Taekwondodeildar ÍR