Lesa frétt
15.3.2011

Aðalfundur Taekwondodeildar ÍR

Aðalfundur deildarinnar haldinn fimmtudaginn 31. mars klukkan 20:30. Við byrjum kvöldið á sameiginlegri æfingu sem hefst kl. 19:00. Við munum svo byrja strax eftir sturtu. Það er mikilvægt að allir gefi sér tíma til að mæta á fundinn.

 

Fundardagskrá:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar um starfsemi deildarinnar.
  3. Lesnir og skýrðir reikningar.
  4. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
  5. Kosinn formaður.
  6. Kosnir 4 aðrir stjórnarmenn og tveir stjórnarmenn til vara
  7. Kosnir fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund félagsins.
  8. Ákveðin æfingagjöld.
  9. Önnur mál

Stjórn Taekwondodeildar.