Skíðaskálinn
Skíðaskálinn Hengill er til útleigu allt árið um kring fyrir félagssamtök, vinnuhópa, skóla og alla aðra sem áhuga hafa. Skálinn sem er nýr og stórglæsilegur er í eigu skíðadeilda ÍR og Víkings. Hann rúmar í allt 90 manns í gistingu og þar er mjög góð eldunaraðstaða og tveir góðir matsalir sem hægt er að opna á milli. Upplýsingar um útleigu í símum 5877080 ÍR og 5813245 Víkingur eða skalanefnd@gmail.com
Með því að smella HÉR má finna upplýsingar um gistingu fyrir hópa.
