Lesa frétt
10.1.2012
ÍR´ingar á mótum í Noregi
Nú er lokið fjögurra móta törn í Oppdal þar sem Tinna Rut, Helga María og Siggi Hauks voru að keppa.
Fyrst var keppt í tveimur stórsvigum og svo í tveimur svigmótum. Tinna kláraði ekki fyrra stórsvigið en var sú eina af Íslendingunum sem kláraði seinna stórsvigið og endaði í 41.sæti. Fyrra svigmótið kláraði hún í 23.sæti. Helga María endaði í 12. Sæti í fyrra stórsvigsmótinu en lauk ekki því seinna. Helga varð svo fremst af stúlkum fæddar 95 og 96 í báðum svigmótunum. Hún varð fremst af Dönski stúlkunum í fyrra mótinu og 5. í því síðara. Siggi tók bara þátt í stórsviginu. Fyrsta daginn varð hann í 54. sæti en hann kláraði ekki seinna mótið.
Það er mikil keyrsla á „útlendingunum“ okkar þessa daga og óskum við þeim til hamingju með árangurinn.
