Lesa frétt
21.1.2012

Helga María í 8 sæti á Ólympíuleikum ungmenna.

Helga María Vilhjálmsdóttir hafnaði í 8. sæti á Vetrarólympíuleikum ungmenna í Innsbruck í Austurríki í dag en það er gríðarlega góður árangur. Keppendur voru alls 54 talsins frá 47 löndum.

Helga var þrátt fyrir þetta í vandræðum í fyrri ferðinni og var að henni lokinni í 14. sæti en hún skíðaði hratt og vel í síðari ferðinni og átti þá sjötta besta tímann. Tími Helgu í fyrri ferðinni var 45,63 sekúndur en í þeirri seinni 39,29 sekúndur.

Árangur Helgu er sá besti sem Íslendingur hefur náð á Ólympíuleikum ungmenna.