Lesa frétt
18.1.2012

Helga María í 21. sæti í Innsbruck

Helga María Vilhjálmsdóttir endaði í 21. sæti í stórsvigi stúlkna á vetrarólympíuleikunum í Innsbruck í Austurríki í dag. 55 stúlkur voru skráðar til leiks og náðu 43 þeirra að ljúka keppni. Helga var með 21. besta tímann eftir fyrri ferðina og endaði að lokum í 21. sæti á tímanum 2.02,06 mínútur. Flottur árangur hjá Helgu,