Lesa frétt
21.1.2012

Frábær árangur Arnars, Eggerts og Elísu á Bikarmóti.

Árangur ÍR´inga á fyrsta bikarmóti vetrarins í flokki 13-14 ára á Akureyri í dag var hreint frábær. Arnar Ingi Kristgeirsson sigraði svigi í dag á 1:20:24 en skammt á eftir honum kom Eggert Ólafsson sem endaði í öðru sæti á 1:21:64. Elísa Hilmarsdóttir varð í öðru sæti í stúlknaflokki á 1:21.44. Á morgun sunnudag verður keppt í stórsvigi á Akureyri.