Lesa frétt
15.1.2012

Bikarmót á Dalvík

Annað bikarmót vetrarins í flokki 15 ára og eldri var haldið á Dalvík um helgina. Keyrð voru tvö stórsvig Stefán Ingi náði bestum árangri ÍR´inga á laugardeginum, endaði í 13 sæti en Magnús Már lauk keppni í 17 sæti yfir heildina en öðru sæti í flokki 15-16 ára. Fanney Rún lauk keppni í 12 sæti. Í dag sunnudag var Kristinn Logi með bestan árangur ÍR´inga, lenti í 13 sæti í heildina en vann flokk 15-16 ára. Nýr liðsmaður ÍR, Hörður Guðmundsson endaði í 23 sæti en þetta voru fyrstu mót hans hér á landi í þessum flokki.